Innheimtuferli

Skipti hf. er innheimtuaðili og mótttakandi greiðslna fyrir dótturfélög sín og Já Upplýsingaveitur. Fjárstýring Skipta hefur umsjón með innheimtuferlum sem eru þrennskonar eftir tegund þjónustu. Hver þeirra er samsettur af mismunandi aðgerðum, þar með talið milliinnheimtu, og er kostnaður samhliða henni breytilegur. Auk þess greiðast sérstök gjöld fyrir enduropnun á þjónustu og samkomulag um uppgreiðslu vanskila.

Fjarskiptaþjónusta

Lýsing
2 dagar frá eindaga Lögbundin innheimtuviðvörun, gjald kr. 690.
17 dagar frá eindaga Milliinnheimtubréf 1 - Áminning, breytilegur kostnaður
27 dagar frá eindaga Lokunarviðvörun, sms til einstaklinga með gsm / bréf til fyrirtækja.
32 dagar frá eindaga Lokað fyrir þjónustu, ekki hægt að hringja út.
47 dagar frá eindaga Milliinnheimtubréf 2 - Ítrekun, breytilegur kostnaður
62 dagar frá eindaga Lokað á þjónustu og milliinnheimtubréf 3 - Lokaítrekun, breytilegur kostnaður
77 dagar frá eindaga Aftenging á þjónustu
92 dagar frá eindaga Lögfræðiinnheimta

Sjónvarpsþjónusta

Lýsing
2 dagar frá eindaga Lögbundin innheimtuviðvörun og tilkynning um lokun, gjald kr. 690.
17 dagar frá eindaga: Lokað fyrir þjónustu.
32 dagar frá eindaga: Milliinnheimtubréf 1 - Áminning, breytilegur kostnaður
47 dagar frá eindaga: Milliinnheimtubréf 2 - Ítrekun, breytilegur kostnaður
62 dagar frá eindaga: Milliinnheimtubréf 3 - Lokaítrekun, breytilegur kostnaður
77 dagar frá eindaga Lögfræðiinnheimta

Vörur, búnaður og önnur þjónusta

Lýsing
2 dagar frá eindaga Lögbundin innheimtuviðvörun, gjald kr. 690.
17 dagar frá eindaga: Milliinnheimtubréf 1 - Áminning, breytilegur kostnaður
32 dagar frá eindaga: Milliinnheimtubréf 2 - Ítrekun, breytilegur kostnaður
47 dagar frá eindaga: Milliinnheimtubréf 3 - Lokaítrekun, breytilegur kostnaður
62 dagar frá eindaga: Lögfræðiinnheimta

Tungumál