Beint í leiðarkerfi vefsins.
Áskrifandi/samningsaðili ber fulla ábyrgð á greiðslum vegna notkunar á þjónustu og búnaði, óháð því hvort notkunin hafi verið heimiluð eða ekki. Reikninga ber að greiða á gjalddaga. Reikningar skulu sendir áskrifendum/samningsaðilum með góðum fyrirvara, eða birtir á vefsvæði þeirra áskrifenda/samningsaðila sem þess hafa óskað.
Útskriftargjald greiðist fyrir hvern sendan reikning til áskrifanda/samningsaðila. Einstaklingar skráðir í netreikning greiða ekki útskriftagjald.
Reikningstímabil miðast við almanaksmánuð og er útgáfudagur reikninga í lok mánaðar. Gjalddagi reikninga er 20. næsta mánaðar eftir útgáfudag og eindagi er 2. næsta mánaðar eftir gjalddaga. Sé reikningur ekki greiddur á eindaga skal áskrifandi greiða dráttarvexti, eins og þeir eru ákveðnir samkvæmt 1. mgr. 6. gr. Laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá og með gjalddaga til greiðsludags, auk þess sem gjald vegna innheimtuviðvörunar leggst á kröfu við útsendingu 2 dögum eftir eindaga.Fyrir enduropnun á þjónustu og samkomulag um uppgreiðslu vanskila greiðast sérstök gjöld.
Athugasemdir skulu gerðar við útgefna reikninga án tafar og eigi síðar en á eindaga, ella telst reikningur samþykktur. Berist athugasemdir of seint eða eftir eindaga, en atvik réttlæta með ótvíræðum hætti tafir á því að athugasemdir bárust, skal eins og frekast er unnt taka afstöðu til þeirra athugasemda.
Greiðsluskilmálar þessir eru hluti af og til fyllingar samningum sem aðilar hafa gert við Skipti og einstök dótturfyrirtæki Skipta hf.