Beint í leiðarkerfi vefsins.
Stjórnarhættir
Stjórnarhættir hjá Skiptum eru skilgreindir sem umgerð utan um umsýslu og stjórnun fyrirtækisins og tæki til samskipta milli stjórnenda fyrirtækisins, félagsstjórnar, hluthafa og annarra hagsmunaaðila.
Stjórn Skipta samþykkti reglur um stjórnarhætti félagsins á fundi sem haldinn var 24. apríl 2007. Markmiðið með reglunum er að tryggja upplýsingagjöf og gegnsæi, skilgreina ábyrgð stjórnar og stjórnenda, skilgreina réttindi og skyldur hluthafa og hagsmunaaðila, tryggja jafnrétti meðal hluthafa og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. Stjórnin ber endanlega ábyrgð á innra eftirlitskerfi Skipta og reglubundinni endurskoðun þess með tilliti til skilvirkni. Hins vegar eru slík kerfi aðeins ætluð til þess að hafa stjórn á þeirri áhættu að viðskiptamarkmið náist ekki, fremur en eyða henni, og við getum því aðeins veitt ástættanlega vissu um að ekki verði um að ræða neinar rangfærslur eða tap af hálfu félagsins.
Reglurnar um stjórnarhætti, sem samþykktar voru, eru í samræmi við Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja (2. útg.), sem gefnar voru út af Viðskiptaráði, Kauphöllinni (OMX) og Samtökum atvinnulífsins. Skipti starfar samkvæmt leiðbeiningunum og hefur einsett sér að virða þær í framtíðaruppbyggingu félagsins og stjórnun þess.
Lögbundnar stofnanir
Æðsta vald í málefnum Skipta hf., innan þeirra marka sem samþykktir félagsins og landslög setja, er í höndum lögmætra hluthafafunda. Hluthafafundi mega hluthafar sækja, fulltrúar þeirra og ráðgjafar. Hluthafafundir eru opnir fulltrúum fjölmiðla og kauphallarinnar. Aðalfundur Skipta er haldinn fyrir maílok ár hvert og er heimilt að halda hann utan lögheimilis félagsins.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverjum hlut. Á hluthafafundi ræður afl atkvæða nema öðruvísi sé fyrir mælt í samþykktum félagsins eða landslögum.
Nefndir stjórnar
Á vegum stjórnar Skipta hf. starfa bæði endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Hvor nefnd um sig er skipuð formanni félagsstjórnar og þeim stjórnarmönnum Skipta sem eru til þess bærir að fjalla um fjármál félagsins eða starfskjör, eftir því sem við á.
Endurskoðunarnefnd
Hlutverk endurskoðunarnefndar er að tryggja áreiðanleika fjármálaupplýsinga til hluthafa, hafa umsjón með innri endurskoðun félagsins og bókhaldskerfi, svo og að leggja mat á vinnu fjármálastjórnenda fyrirtækisins og kjörins endurskoðanda. Hlutverk nefndarinnar nær til þeirra verkefna sem kveðið er á um í kafla 3.1.A.3 í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, sem gefnar eru út af Viðskiptaráði, Kauphöllinni (OMX) og Samtökum atvinnulífsins. Endurskoðunarnefnd er skipuð þremur nefndarmönnum að lágmarki og skulu tveir þeirra óháðir félaginu. Þó má nefndin vera skipuð tveimur mönnum og skulu þá báðir óháðir félaginu. Nefndarmenn skulu búa yfir þeirri reynslu og þekkingu sem nauðsynleg er til þess að gegna störfum sínum. Þar sem verkefni endurskoðunarnefndar er að fást við fjármál og niðurstöður slíkra mála og umsjón með þeim skulu allir nefndarmenn búa yfir ítarlegri þekkingu á bókhaldi og reikningsskilagerð.
Rannveig Rist, Erlendur Hjaltason og Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson skipa endurskoðunarnefnd Skipta.
Starfskjaranefnd
Hlutverk starfskjaranefndar er að tryggja að starfskjör yfirstjórnenda taki mið af afkomu fyrirtækisins til langs tíma, frammistöðu þeirra sjálfra og hagsumunum hluthafa. Framkvæmdastjóri er ábyrgur fyrir starfskjörum annarra og ber honum að tryggja að starfskjör séu ávallt í samræmi við stefnu starfskjaranefndar. Stefna starfskjaranefndar er að tryggja að félaginu sé jafnan kleift að laða til sín og halda í starfi hæfum stjórnendum. Í þessu skyni ber nefndinni að ráðfæra sig við ytri ráðgjafa um starfskjör í sambærilegum fyrirtækjum þegar þörf krefur. Í starfskjörum framkvæmdastjóra felast föst laun, árleg bónusgreiðsla, lífeyrir og önnur skattbær hlunnindi. Hlutverki nefndarinnar er ætlað að ná til þeirra verkefna sem kveðið er á um í kafla 3.1.B.3 í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, sem gefnar eru út af Viðskiptaráði, Kauphöllinni (OMX) og Samtökum atvinnulífsins.
Starfskjaranefnd ákveður einnig kaupréttarstefnu félagsins gagnvart starfsmönnum. Meginákvæði kaupréttaráætlana ber að leggja fyrir hluthafafund til samþykktar. Starfskjaranefnd er skipuð þremur nefndarmönnum og skulu tveir þeirra óháðir félaginu. Þó má nefndin vera skipuð tveimur mönnum og skulu þá báðir óháðir félaginu. Vegna eðlis starfa nefndarinnar mega hvorki framkvæmdastjóri né aðrir starfmenn eiga þar sæti.
Lýður Gudmundsson, Rannveig Rist og Panikos Katsouris skipa starfskjaranefnd Skipta.