Sirius IT skilar 1.025 milljóna króna hagnaði 

06.04.2010

Rekstur norræna upplýsingatæknifyrirtækisins Sirius IT, dótturfélags Skipta,  gekk mjög vel á árinu 2009. Rekstrartekjur samstæðunnar námu samtals 10,6 milljörðum íslenskra króna og hagnaður 1.025 milljónum eftir skatta. 

„Við erum mjög ánægð um afkomu fyrirtækisins á síðasta ári og var hún töluvert umfram áætlanir.  Í Danmörku og Noregi gekk reksturinn vel, eins og á síðasta ári, en mestu munar um verulegan viðsnúning til hins betra í Svíþjóð. Verkefnastaða félagsins var mjög góð og á síðasta ári gerði fyrirtækið marga stóra viðskiptasamninga bæði við núverandi og einnig nýja viðskiptavini”, segir Hreinn Jakobsson, stjórnarformaður Sirius IT.

Sjá nánar


Tungumál