Beint í leiðarkerfi vefsins.

Sirius IT , dótturfélag Skipta hefur náð samningi við Norwegian Film Institute (NFI) um þróun og viðhald á nýju mála- og skjalastjórnunarkerfi. Sirius IT var valið í samkeppni fjögurra birgja á slíkum kerfum.
Norwegian Film Institute (NFI) stýrir styrktarkerfi norska kvikmyndaiðnaðarins. Um er að ræða styrki jafnt til þróunar, framleiðslu og útgáfu kvikmynda.
Hið nýja mála- og skjalastjórnunarkerfi mun halda utan um ferli styrkjamála, allt frá því að umsókn berst, mat á umsóknum, útgreiðslu styrkja og eftirfylgni. Lausnin mun skila starfsfólki NFI skilvirkari vinnuumhverfi og einnig tryggja mun betri upplýsingagjöf á stöðu mála á hverju stigi.