Fimm tilnefningar til vefverðlauna  

08.02.2010

Fimm tilnefningar til vefverðlauna

Síminn, Já og Skjárinn eiga samtals fimm tilnefningar til íslensku vefverðlaunanna. Dómnefnd skipuð fagfólki í vefmálum hefur nú valið þá vefi sem komast í úrslit til þessara eftirsóttu verðlauna.

Þannig fær ja.is tilnefningu sem besti þjónustu- og upplýsingavefurinn og skjarinn.is tilnefningu sem besti afþreyingar- og fréttavefurinn.  Í flokknum besti hand-smátækjavefurinn eru síðan m.ring.is, m.ja.is og m.siminn.is tilnefndir.

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða. 


Tungumál