Beint í leiðarkerfi vefsins.
Skipti hafa birt uppgjör fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2010. Alls er um 2 milljarða króna jákvæður viðsnúningur á afkomu félagsins
Á siminn.is er nú að finna nýtt gagnvirkt kort af 3G farsímadreifikerfi Símans. Kortið er mjög nákvæmt landakort og á því geta notendur fundið upplýsingar um hvar á landinu Síminn býður upp á 3G samband.
Skipti hf. hafa selt upplýsingatæknifyrirtækið Sirius IT sem er með starfsemi í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Kaupandi er norska upplýsingatæknifyrirtækið Visma. Kaupverð er trúnaðarmál en heildarhagnaður Skipta vegna fjárfestingarinnar í Sirius IT nemur um 5,5 milljörðum króna.
Síminn ásamt iðnaðarráðherra, lykilfyrirtækjum og -stofnunum sem leggja áherslu á öryggi undirritaði í dag samning vegna verkefnisins „Safetravel“ eða öryggi ferðamanna.
Símaskráin 2010 er komin út. Verðlaunatillagan „Mundu mig – ég man þig“ prýðir forsíðuna í ár. Sýning á 1.500 forsíðutillögum hefur verið opnuð á Já.is
Nú hafa komið um 4 milljónir heimsókna á heimasíðu Mílu til að fylgjast með gosinu frá því Míla setti upp fyrstu myndavélarnar á gossvæðinu. Aldrei áður í 10 ára vefmælisögu sinni, hefur Modernus upplifað annað eins skot á gagnagrunninn.
Rekstur norræna upplýsingatæknifyrirtækisins Sirius IT, dótturfélags Skipta, gekk mjög vel á árinu 2009. Rekstrartekjur samstæðunnar námu samtals 10,6 milljörðum íslenskra króna og hagnaður 1.025 milljónum eftir skatta.
Míla hefur sett upp myndavélar við gossvæðið á Fimmvörðuhálsi, þar sem unnt er að fylgjast með framgangi gossins.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 8,7 milljörðum króna. EBITDA hlutfallið var 22%.
Skipti hf. birtir afkomu sína á árinu 2009 í viku 12, 22.-26. mars
Markaðsstjórar 400 stærstu auglýsenda landsins nefndu Símann oftast sem það fyrirtæki sem stóð sig best í markaðsmálum á síðasta ári samkvæmt könnun Capacent
Í ellefta skiptið í röð nær Sensa þeim áfanga að fá Customer Satisfaction Excellence viðurkenninguna frá Cisco. Fyrirtækjum hlotnast þessi viðurkenning eftir framúrskarandi árangur í þjónustukönnun sem Cisco gerir hjá viðskiptavinum Sensa.
Síminn hefur ákveðið að ráðast í umfangsmikla uppbyggingu sem felur í sér breytingu á Breiðbandi Símans yfir í Ljósnet Símans.
Ja.is var valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum. Í umsögn dómnefndar segir m.a. að vefurinn sé byltingarkenndur í aðgengi upplýsinga um íslenska staðhætti.
Sirius IT , dótturfélag Skipta hefur náð samningi við Norwegian Film Institute (NFI) um þróun og viðhald á nýju mála- og skjalastjórnunarkerfi. Sirius IT var valið í samkeppni fjögurra birgja á slíkum kerfum.